Erlent

Besta viský heimsins kemur frá Wick

Maltviský sem bruggað er í afskekktasta brugghúsi Skotlands hefur verið valið besta viský heimsins af Viskýbiblíu Jim Murray.

Viskýið heitir Old Pulteney og er sett á markað þegar það er 21 árs gamalt. Það er bruggað í smábænum Wick í héraðinu Caithness í skosku hálöndunum.

Viskýskérfræðingurinn Jim Murray smakkaði á yfir 1.200 viskýtegundum áður en hann valdi Old Pulteney sem besta viskýið en viskýið náði meteinkunn hjá sérfræðingnum eða 97,5 stigum og 100 mögulegum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×