Erlent

Vill að sharialögin gildi í Líbíu

Mustafa Abdel Jalil núverandi leiðtogi bráðabirgðastjórnar Líbíu segir að íslömsku sharialögin eigi að mynda grundvöllinn að nýrri stjórnarskrá landsins.

Þetta kemur fram í viðtali við leiðtogann á Reuters. Líbía sé íslömsk þjóð og því muni sérhver lög sem eru í andstöðu við íslamska trú verða ólögleg í landinu, að sögn leiðtogans.

Samhliða þessu notaði Mustafa Abdel tækifærið til að þakka Afríkusambandinu, Sameinuðu þjóðunum og Evrópusambandinu fyrir veittan stuðning við að koma stjórn Muammar Gaddafi frá völdum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×