Erlent

Lík stuðningsmanna Gaddafi finnast á hóteli

Yfirvöld í Líbíu hafa ekki tjáð sig um málið.
Yfirvöld í Líbíu hafa ekki tjáð sig um málið. mynd/AFP
Mannréttindavaktin tilkynnti í dag að lík 53 manna hefðu fundist á hótelherbergi í Sirte í Líbíu. Hótelið var undir stjórn byltingarhermanna sem börðust í borginni.

Hinir föllnu voru ýmist stuðningsmenn Muammar Gaddafi, fyrrverandi einræðisherra Líbíu, eða íbúar Sirtre.

Peter Bouckaert, talsmaður Mannréttindavaktarinnar, sagði að sumir hefðu hendur bundnar fyrir aftan bak og að augljóslega væri um aftökur að ræða. Hann sagði að nauðsynlegt væri fyrir núverandi yfirvöld í Líbíu að rannsaka málið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×