Erlent

Óhugnanlegt morð í Skotlandi

Morðið á Stuart Walker hefur vakið mikinn óhug í Skotlandi.
Morðið á Stuart Walker hefur vakið mikinn óhug í Skotlandi.
Rannsókn er hafinn á dauða Stuart Walker en lík hans fannst á iðnaðarsvæði í Cumnock, Skotlandi í gær.

Walker var starfsmaður á hóteli og síðast sást til hans á laugardaginn. Hann fannst tjóðraður við ljósastaur. Talið er að árásarmennirnir hafi kveikt í honum og lamið til dauða.

Málið þykir afar óhugnanlegt og vill lögreglan lítið tjá sig um málið. Yfirvöld hafa þó gefið til að kynna að rannsókn málsins beinist að gleðskap sem átti sér stað í nærliggjandi húsi.

Walker var samkynhneigður og í kjölfarið mynduðust vangaveltur um hvort að fordómar hafi legið að baki morðinu. Lögreglan útilokar ekki að um hatursglæp sé að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×