Erlent

130 mótmælendur handteknir í Chicago

Mótmælin hafa dreifst víða um heim síðan þau hófust í New York í september.
Mótmælin hafa dreifst víða um heim síðan þau hófust í New York í september. mynd/AFP
Lögreglan í Chicago handtók 130 mótmælendur í dag sem neituðu að yfirgefa útivistarsvæði í borginni.

Alls voru um 1.000 mótmælendur á staðnum. Stór hluti þeirra færði sig en aðrir sátu eftir og voru handteknir.

Mótmælin í Chicago eru í takt við þau sem byrjuðu í New York fyrir nokkrum vikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×