Erlent

Forsætisráðherra Zimbabwe styður samkynhneigða

Tsvangirai er vongóður um að hreppa forsetaembættið á næsta ári.
Tsvangirai er vongóður um að hreppa forsetaembættið á næsta ári. mynd/AFP
Forsætisráðherra Zimbabwe, Morgan Tsvangirai, hefur lýst yfir stuðningi sínum við málstað samkynhneigðra. Þetta sagði hann í viðtali á BBC í dag.

Yfirlýsing Tsvangirai er mikill viðsnúningur en á síðasta ári sagðist hann vera mótfallinn samkynhneigð. Núna, hins vegar, vill Tsvangirai tryggja mannréttindi samkynhneigðra í stjórnarskrá Zimbabwe.

Samkynhneigð er bönnuð í Zimbabwe, rétt eins og mörgum öðrum Afríkulöndum.

Kosið verður í Zimbabwe á næsta ári og vonast Tsvangirai til að taka við embætti forseta. Sitjandi forseti, Robert Mugabe, sagði eitt sinn að samkynhneigðir væru verri en hundar og svín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×