Erlent

Obama leitar til stjarnanna

Bandaríkjaforseti leitar til Hollywood eftir stuðningi.
Bandaríkjaforseti leitar til Hollywood eftir stuðningi. mynd/AFP
Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er ekkert gamanmál og gríðarlegt fjármagn þarf til að koma málstað sínum á framfæri. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur leitað stuðnings síðustu vikur til að fjármagna baráttu sína fyrir endurkjöri á næsta ári.

Hollywood stjörnur eru því ákjósanlegir stuðningsmenn og hefur Obama því ferðast um Kalíforníu og rætt við stjörnur og áhrifamenn í kvikmyndabransanum. Í gær gekk forsetinn á fund leikarans Will Smith og fyrrverandi körfuboltamannsins Magic Johnsons. Þrímenningarnir snæddu kvöldverð áður en Obama hélt í fjáröflunarsamkomu sem leikarinn Antonio Banderas stóð fyrir.

Um 40 leikarar komu saman á heimili Banderas og greiddu rúmar fjórar milljónir íslenskra króna til að hitta forsetann.

Obama sagði að almenningur í Bandaríkjunum gleymi því oft hversu mikið stjórn hans hafi gert fyrir landið. Hann sagðist vera reynslumeiri nú og að kosningabaráttan yrði eflaust ekki jafn æsandi og hún var fyrir fjórum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×