Erlent

Stór jarðskjálfti skók Fukushima hérað

Jarðskjálfti upp á 5,2 á Richter skók Fukushima héraðið í Japan í nótt. Upptök skjálftans voru á hafsborni í um 186 kílómetra fjarlægð norður af Tókýó. Engan upplýsingar hafa borist um mannskaða eða skaða á byggingum af völdum þessa skjálfta.

Fukushima héraðið varð mjög illa úti í stórum jarðskjálfta og flóðbylgju sem fylgdi í kjölfarið í mars síðastliðnum. Fleiri en 21.000 manns létu lífið og versta kjarnorkuslys í sögunni síðan Tjernobyl varð staðreynd. Enn er verið að glíma við afleiðingar kjarnorkuslyssins í Fukushima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×