Erlent

Sjö milljarðasti einstaklingurinn fæðist 31. október

Talið er sjö milljarðasti einstaklingurinn fæðist þann 31. október.
Talið er sjö milljarðasti einstaklingurinn fæðist þann 31. október. mynd/AFP
Nýútkomin skýrsla á vegum Sameinuðu Þjóðanna útlistar þau vandamál sem fylgja fólksfjölgun jarðar. Skýrslan, sem ber heitið Ástand fólksfjölgunar 2011, kemur út nokkrum dögum áður en mannkynið verður sjö milljarðar.

Í skýrslunni er lagt til að nýtt viðhorf til fólksfjölgunar verði tekið upp. Ekki sé lengur hægt að segja að við séum einfaldlega of mörg - í staðinn verðum við að komast að því hvernig við tökumst á við aukninguna.

Samt sem áður skilgreina höfundar skýrslunnar þau vandamál sem fylgja sífelldri fólksfjölgun.

Richard Kollodge, ritstjóri skýrslunnar, segir að nauðsynlegt sé að tryggja heilbrigði mannkyns og að sem flestir hafi aðgang að menntun. Hann sagði að núna væri tíminn til að tryggja framtíð komandi kynslóða, enda muni mannkyninu fjölga enn hraðar á næstu áratugum.

Talið er sjö milljarðasti einstaklingurinn fæðist 31. október næstkomandi. Enn fremur er talið að fjöldi mannkyns verði um 10 milljarðar um næstu aldamót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×