Erlent

Fjöldagröf finnst í Líbíu

Óttast er að byltingarhermenn Þjóðarráðsins hafi tekið stuðningsmenn Gaddafi af lífi.
Óttast er að byltingarhermenn Þjóðarráðsins hafi tekið stuðningsmenn Gaddafi af lífi. mynd/AFP
Lík 267 stuðningsmanna Muammars Gaddafi, fyrrverandi einræðisherra Líbíu, fundust í Sirte í dag.

Fjöldagröfin fannst í Sirtre og er talið að meirihluta þeirra sem fundust hafi verið teknir af lífi.

Talsmaður Rauða krossins sagði að flestir hinna látnu hafi verið stuðningsmenn fyrrum einræðisherrans.

Þjóðarráð Líbíu hefur heitið því að rannsaka málið og refsa þeim sem bera ábyrgð á fjöldamorðinu.

Fjöldagröfin fannst degi eftir að Gaddafi var grafinn á leynilegum stað í eyðimörkinni í Líbíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×