Erlent

Slagsmál á ítalska þinginu

Til handalögmála kom á ítalska þinginu í gærdag þegar verið var að ræða þar frekari aðhaldsaðgerðir á vegum hins opinbera.

Tveir stjórnarþingmanna slógust við þingmenn stjórnarandstöðunnar og þurfti að gera hlé á þingstörfum í nokkrar mínútur meðan að aðrir þingmenn gengu á milli slagsmálahundanna og fengu þá til að róa sig niður.

Slagsmálin hófust þegar Gianfranco Fini leiðtogi stjórnarandstöðunnar sagði að eiginkona Umberto Bossi leiðtoga Norðurbandalagsins hefði farið á eftirlaun aðeins 39 ára gömul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×