Erlent

Í óformlegum viðræðum við son Gaddafís

Mynd/AP
Saksóknarar hjá Alþjóðastríðsglæpadómstólnum hafa verið í óformlegu sambandi við Saif al Islam, son Múammars Gaddafís fyrrum einræðisherra í Líbíu. Saif er eftirlýstur af dómstólnum sakaður um stríðsglæpi en hann hefur farið huldu höfði síðustu mánuði.

Hann var af flestum talinn næstráðandi í Líbíu og líklegur arftaki Múammars áður en uppreisnin hófst. Saksóknarar reyna nú að fá Saif til þess að gefa sig fram og hafa ítrekað við hann að hann verði álitin saklaus uns sekt verði sönnuð, en faðir hans var tekinn af lífi án dóms og laga í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×