Erlent

Kannabismaður sprengdi íbúð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan handtók manninn eftir sprenginguna.
Lögreglan handtók manninn eftir sprenginguna. mynd/ afp.
Sprenging varð í íbúð í Osló, höfuðborg Noregs, í gærkvöld þegar karlmaður á þrítugsaldri var að blanda saman kannabisolíum. Rúður í íbúðinni sprungu og hún er mikið skemmd, eftir því sem fram kemur í Aftenposten. Enginn meiddist í sprengingunni sem varð í íbúðinni á níundu hæð. Lögreglan segir að ekki hafi verið mikið af fíkniefnum í íbúðinni. Þetta verði vart kallað fíkniefnaverksmiðja. Ungi maðurinn hefur verið handtekinn fyrir að hafa valdið sprengingunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×