Fórnarlamb Rooney segir að þriggja leikja bannið sé alltof strangt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. október 2011 09:45 Wayne Rooney sparkar hér aftan í Miodrag Dzudovic. Mynd/Nordic Photos/Getty
Miodrag Dzudovic, varnarmaður landsliðs Svartfjallalands sem Wayne Rooney sparkaði aftan í á dögunum og fékk rautt spjald fyrir, hefur boðist til að tala máli enska landsliðsmannsins ef að enska knattspyrnusambandið ákveður að áfrýja leikbanni Rooney. Knattspyrnusamband Evrópu dæmdi Wayne Rooney í síðustu viku í þriggja leikja bann fyrir rauða spjaldið sitt í Svartfjallalandi sem þýðir að Rooney missir af allri riðlakeppninni á Evrópumótinu næsta sumar. Miodrag Dzudovic spilar fyrir Spartak Nalchik í Rússlandi og blaðamaður Daily Mirror hafði upp á honum og spurði hann út í Rooney og rauða spjaldið. „Ég mun tala fyrir hönd Rooney ef hann áfrýjar banninu sínu. Refsingin var ekki sanngjörn að mínu mati. Hann hugsaði ekki þegar hann gerði þetta og um leið og hann áttaði sig á því sem hann hafði gert þá bað hann mig strax afsökunar. Ég var smá bólginn eftir leikinn en fékk ekki mar," sagði Miodrag Dzudovic. Miodrag Dzudovic er 32 ára miðvörður sem á að baki þrettán landsleiki fyrir Svartfjallaland. Hann hefur spilað í rússnesku deildinni frá 2006. Enska knattspyrnusambandið er ekki búið að taka ákvörðun um það hvort að leikbanni Wayne Rooney verði áfrýjað.
Mest lesið Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Fótbolti „Algjört kjaftæði og menn verða að fara taka sig aðeins saman í andlitinu“ Sport Magaplástrar kínverskra íþróttakvenna vekja furðu Sport Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Körfubolti „Kom mér ótrúlega mikið á óvart og er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Fótbolti Þurftu að stækka þýska meistaraskjöldinn Fótbolti Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír Íslenski boltinn Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Íslenski boltinn „Andri Rúnar færir liðinu mjög mikið“ Fótbolti Fleiri fréttir Lampard kom Coventry upp í úrvalsdeildina eftir 25 ára bið Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Sjá meira