Erlent

Níu ára ökumaður skutlaði pabba heim

Lögreglan sagði stúlkuna hafa ekið furðu vel.
Lögreglan sagði stúlkuna hafa ekið furðu vel.
Níu ára gömul stúlka var stöðvuð af lögreglunni í Michigan í gær. Þegar lögreglumaðurinn gekk að stúlkunni spurði hún hvað vandamálið væri. Hún taldi sig hafa ekið vel.

Samkvæmt lögreglunni í Michigan sat stúlkan á bílpúða og hafði í raun ekið nokkuð vel. Hún gaf stefnuljós þegar hún lagði bílnum.

Faðir stúlkunnar sat í farþegasætinu. Hann var ofurölvi og sagði dóttir hans lögreglunni að hann hefði drukkið viskí alla nóttina. Hún væri einfaldlega að skutla honum heim.

Á myndbandsupptöku í verslun sást til feðginanna. Dóttirinn át sælgæti og ölvaður pabbinn montaði sig af hæfni dóttur sinnar við starfsmann verslunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×