Gaddafí segir Nato skorta úthald 20. september 2011 13:34 Múammar Gaddafí virðist ekki af baki dottinn þrátt fyrir að uppreisnarmenn ráði nú lögum og lofum í stærstum hluta Líbíu.
Bardagar standa enn yfir í Líbíu, mánuði eftir að uppreisnarmenn náðu völdum í höfuðborginni Trípólí. Uppreisnarmenn segjast nú hafa náð á sitt vald hluta borgarinnar Sabha, sem er eitt af síðustu vígjum stuðningsmanna Gaddafís fyrrverandi einræðisherra. Hann sendi frá sér ávarp í morgun. Þá er enn barist í borginni Sirte, fæðingarborg Gaddafís og í Bani Walid en í gær bárust óstaðfestar fregnir þess efnis að Saif Al Islam sonur Gaddafís væri í borginni sem þykir benda til þess að Gaddafí sjálfur sé þar einnig. Uppreisnarmenn fullyrða að þeir séu við það að ná fullum yfirráðum yfir Sabha, en það myndi þýða að Gaddafí og föruneyti hans gæti ekki forðað sér yfir til Níger. Stuðningsmenn Gaddafís hafa engu að síður veitt harða mótspyrnu, sérstaklega í Bani Walid og í Sirte. Nú safna uppreisnarmenn liði fyrir utan síðarnefndu borgina og hafa hundruðir fjölskyldna flúið hana til að forða sér frá komandi átökum. Í ávarpi sem spilað var á Sýrlenskri ríkissjónvarpsstöð í dag segir Múammar Gaddafí kokhraustur að ástandið í landinu sé skrípaleikur sem geti aðeins átt sér stað á meðan Nato beiti loftárásum. Það muni bandalagið ekki geta gert endalaust og því sé ómögulegt að kollsteypa því kerfi sem hann hafi komið á í landinu. Hann og hans menn muni því hafa sigur að lokum. „Stjórnmálakerfið í Líbíu byggir á afli fólksins,“ sagði hann meðal annars. „Það er engin leið að brjóta niður það kerfi.“
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Fleiri fréttir Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Sjá meira