David Silva: Del Bosque vill ekki nota mig í spænska landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2011 17:30 David Silva. Mynd/Nordic Photos/Getty
David Silva hefur spilað frábærlega fyrir lið Manchester City í fyrstu leikjum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni en einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar er ekki nógu góður fyrir spænska landsliðið. David Silva er sár yfir fáum tækifærum sem hann hefur fengið undanfarið með spænska landsliðinu en hann segir það skipti engu máli hvernig hann muni spila í vetur því hann verði alltaf á bekknum. David Silva hefur ekki verið í náðinni hjá Vicente del Bosque síðan að hann lék fyrstu 62 mínúturnar í 0-1 tapi liðsins á móti Sviss í úrslitakeppni HM sumarið 2010. Silva fékk aðeins að spila í samtals fimm mínútur í síðustu sex leikjum liðsins á HM sem Spánverjar unnu alla. Silva hefur síðan verið í aukahlutverki í undankeppni EM 2012. „Þjálfarinn treystir ekki á mig og það skiptir að mínu mati engu máli hvernig ég stend mig því ég fæ engin tækifæri í byrjunarliðinu. Ég er eina fórnarlambið úr þessu tapi á móti Sviss í Suður-Afríku," sagði David Silva í viðtali við Marca. „Ég er ekki ánægður en ég sé ekkert í spilunum um að staða mín í landsliðinu muni eitthvað breytast," sagði David Silva sem hefur skorað 11 mörk í 49 landsleikjum og varð bæði Heims- og Evrópumeistari með liðinu. David Silva er alltaf í hópnum en hann hefur aðeins verið í byrjunarliðinu í tveimur af sex leikjum Spánverja í undankeppni EM 2012. „Mér finnst líka oft eins og það hafi skaðað mína möguleika í landsliðinu að hafa ekki endað hjá Barcelona eða Real Madrid," sagði Silva en Manchester City keypti hann á 30 milljónir evra frá Valencia síðasta sumar.
Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Sjá meira