Enski boltinn

Þriggja ára martröð Hargreaves á enda

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Owen Hargreaves minnti óvænt á sig hjá Man. City í gær er hann skoraði í fyrsta leik sínum fyrir félagið. Markið kom gegn Birmingham í deildarbikarnum og var nokkuð snoturt.

Hann var svo tekinn af velli eftir klukkutíma leik en það hafði verið ákveðið fyrir leikinn enda leikmaðurinn ekki alveg kominn í stand og hefur reyndar ekki verið í standi í þrjú ár.

"Ég vissi að ég er nálægt því að komast í form. Ég er svo glaður að vera kominn aftur út á völlinn því aldrei bjóst ég við því að vera utan vallar í heil þrjú ár," sagði Hargreaves.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×