Villas-Boas: Chelsea getur alveg keppt við Manchester-liðin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. september 2011 11:30 André Villas-Boas, stjóri Chelsea. Mynd/Nordic Photos/Getty
André Villas-Boas, stjóri Chelsea, óttast ekki frábæra byrjun Manchester-liðanna í ensku úrvalsdeildinni og segir allt að sex félög muni berjast um meistaratitilinn í vetur. Manchester-liðin hafa fullt hús eftir fyrstu þrjá leikina og hafa skorað saman 25 mörk í þeim. Chelsea er sem stendur í fjórða sæti með sjö stig af níu mögulegum en liðið gerði markalaust jafntefli við Stoke í fyrstu umferðinni. Síðan þá hefur liðið unnið sigra á West Brom og Norwich og framundan er leikur við Sunderland í dag. Villas-Boas var spurður út í byrjun Manchester-liðanna. „Þetta er gott hjá þeim. Þau hafa skorað mikið af mörkum sem er gott fyrir enska knattspyrnu. Við ætlum okkur bara að skora fleiri mörk en mótherjarnir. Við erum tveimur stigum á eftir þeim og þurfum að vera nær þeim. Okkar markmið er að stytta bilið og verða betri. Við náum ekki fullkomnun á þessu tímabili eða því næsta en við ætlum að bæta okkar leik í hverri viku," sagði André Villas-Boas. „Við erum ánægðir með að skapa nóg af færum til þess að vinna leiki og ætlum að einbeita okkur að því að halda því áfram. Við verðum að bæta gæðin og flæðið í okkar leik sem kemur bara með fleiri leikjum," sagði Villas-Boas en hvað fannst honum um 8-2 sigur Manchester United á Arsenal. „Þetta voru ekki venjuleg úrslit og svona gerist ekki oft. Manchester United spilaði þarna fullkominn leik," sagði Villas-Boas en hvernig verður toppbaráttan í vetur. „Það eru fimm félög sem berjast við United um titilinn en það eru City, Liverpool, Chelsea og Arsenal. Ég er ekki heldur það vitlaus að minnast ekki á Tottenham því það er ekkert ósennilegt að þær bætist líka í hópinn," sagði Villas-Boas.
Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn „Restin var bara ekki með“ Fótbolti Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Handbolti Fleiri fréttir Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Sjá meira