Viðtalið umdeilda við Torres í heild sinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. september 2011 13:13
Svo virðist sem að Fernando Torres hafi í raun ekki gagnrýnt liðsfélaga sína fyrir að vera of hæga, eins og fullyrt var reyndar á hans eigin vefsíðu nú fyrir skömmu. Málið virðist vera stórfurðulegt og byggt á algerum misskilningi. Andre-Villas Boas, stjóri Chelsea, brást illa við fregnum að Torres hafi í nýlegu viðtali gagnrýnt suma liðsfélaga sína hjá Chelsea fyrir að vera gamlir og hægir. Hann sagði á blaðamannafundi í gær að félagið myndi rannsaka málið ítarlega og til þess þyrfti það að fá upptöku af viðtalinu sjálfu. Hið furðulega er að viðtalið umrædda birtist á heimasíðu Torres sem sjálfur ber við algeru sakleysi. Orð hans hafi verið mistúlkuð. Vefsíðan Football365 fullyrðir í dag að viðtalið hafi verið tekið fyrir þátt um spænsku úrvalsdeildina en það má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. Viðtalið er bæði tekið á spænsku og ensku og virðist vandamálið vera tilkomið vegna misskilnings ónefnds aðila sem að þýddi viðtalið yfir á ensku fyrir heimasíðu Torres. Í stað þess að nota upprunaleg ummæli Torres í umræddu viðtali, sem voru einmitt á ensku í þessu tilfelli, notaðist hann við þýðingu einhvers annars sem hafði þýtt viðtalið yfir á spænsku. Eins og sést í viðtalinu, eftir um tvær og hálfa mínútu, segir Torres ekkert um að félagar hans hjá Chelsea séu gamlir og hægir. Ummælin tengjast komu Juan Mata til félagsins og segir Torres að bæði hann og Daniel Sturridge muni gefa Chelsea tækifæri til að sækja hraðar á andstæðinginn. Þetta ætti að róa knattspyrustjórann Andre Villas-Boas og Fernando Torres andar því væntanlega léttar.
Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira