Garry O'Connor leikmaðurinn sem neytti kókaíns Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. september 2011 13:45 Garry O'Connor í leik með Birmingham í júlí árið 2010. Nordic Photos / Getty Images
Knattspyrnumaðurinn sem mun hafa fallið á lyfjaprófi fyrir að neyta kókaíns heitir Garry O'Connor. Hann er 28 ára gamall Skoti sem leikur með Hibernian í Skotlandi. Í gær spurðist það út að ónefndur knattspyrnumaður, sem hafði gengið kaupum og sölum fyrir meira en milljón punda, hafi fallið á lyfjaprófi fyrir kókaínneyslu og að hann hafi verið seldur til nýs félags sem vissi ekkert um málið. Talið er að O'Connor hafi fallið á umræddu lyfjaprófi þegar hann var á mála hjá Birmingham leiktíðina 2009-2010 en hann var frá allt það tímabil vegna meiðsla. Þá var reyndar búið að selja hann fyrir stórar upphæðir. Árið 2006 var hann seldur frá Hibernian til Lokomotiv Moskvu fyrir 1,6 milljón punda og ári síðar keypti Birmingham fyrir 2,7 milljónir punda. O'Connor fór síðar án greiðslu til Barnsley en er nú kominn aftur til Hibernian sem er hans uppeldisfélag. Forráðamenn Barnsley segja að þeir hefðu aldrei samið við O'Connor hefðu þeir vitað af umræddu lyfjaprófi. Þátturinn gerði mikið úr þeirri staðreynd að enska knattspyrnusambandið heldur í mörgum tilfellum nöfnum þeirra leyndum sem falla á lyfjaprófi fyrir neyslu eiturlyfja. Er fullyrt í enskum fjölmiðlum að það sé gert til að vernda leikmennina, sem eru í flestum tilfellum ungir, og gefa þeim þar með tækifæri til að koma sér aftur á rétta braut í lífinu. Öllum þeim sem falla á lyfjaprófi er þó refsað í samræmi við alþjóðlegar reglur. O'Connor komst fyrst í skoska landsliðið aðeins átján ára gamall og á alls að baki sextán landsleiki. Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður U-21 landsliðs Íslands, er á mála hjá Hibernian.
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira