Gjaldþrot sólarkísilverksmiðju skekur Bandaríkjastjórn 15. september 2011 12:22 Barack Obama heimsótti fyrirtækið fyrir nokkrum misserum. Mynd/AP
Gjaldþrot sólarkísilverksmiðju í Kaliforníu skekur ríkisstjórn Baracks Obama, sem er sökuð um að hafa sólundað 60 milljörðum króna í fyrirtæki sem átti að verða táknmynd endurreisnar bandarísks efnahagslífs. Gjaldþrot sólarrafhlöðuframleiðandans Solyndra var eitt stærsta mál bandaríska fjölmiðla í gær og jafnvel rætt um að í uppsiglingu væri hneykslismál í ætt við Watergate sem gæti skaðað mjög Barack Obama Bandaríkjaforseta. Ástæðan er sú að Bandaríkjastjórn lánaði fyrirtækinu yfir sextíu milljarða króna, og saka repúblikanar ríkisstjórnina um að hafa þrýst láninu í gegn á síðasta ári þrátt fyrir viðvaranir opinberrar lánanefndar. Gjaldþrot Solyndra þykir sérlega neyðarlegt fyrir Barack Obama sem sjálfur hafði mætt í fyrirtækið og hampað því sem táknrænu um endurreisn bandarísks efnahagslífs þar sem saman færi græn sólarorka og arðbær hátækniiðnaður. Raunveruleikinn reyndist hins vegar annar. Verð á sólarrafhlöðum féll um 42 prósent og efnahagskreppa í Evrópu dró mjög úr eftirspurn. Repúblikanar segja stjórn Obama hafa kastað 535 milljónum bandaríkjadollara af fjármunum skattborgara í ævintýrið og það sé nú glatað fé.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Sjá meira