Íslenski boltinn

Þjóðarstoltið í fyrirrúmi í hvatningarmyndbandi Sigga Ragga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Daníel
Ísland mætir Noregi í afar mikilvægum leik í undankeppni EM 2013 á Laugardalsvelli á morgun. Eins og venjan er hefur landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson útbúið sérstakt hvatningarmyndband fyrir leikmenn liðsins.

Í þetta sinn er miðjupunkturinn í myndbandinu þjóðarstoltið sem fylgir því að keppa fyrir hönd Íslands í alþjóðlegum keppnum. Eins og vanalega er myndbandið afar áhrifaríkt og vel til þess fallið að kveikja í leikmönnum fyrir leikinn mikilvæga á morgun.

Leikurinn hefst klukkan 16.00 og verður fylgst náið með gangi mála á Boltavakt Vísis.

Myndbandið má sjá með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×