Enski boltinn

Manchester City og Fulham skildu jöfn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Manchester City Fulham gerðu 2-2 á Craven Cottage í dag, en gestirnir gerði tvö fyrstu mörk leiksins. Fulham neitaði að gefast upp og náði að jafna leikinn.

Sergio Aguero, leikmaður Manchester City, getur hreinlega ekki hætt að skora en hann gerði fyrstu tvö mörk leiksins. Síðara markið kom eftir aðeins níu sekúndna leik í síðari hálfleik, hreint ótrúlegt mark.

Bobby Zamora náði að minnka muninn fyrir Fulham þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum. Danny Murphy náði síðan að jafna metinn fyrir heimamenn korteri fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×