Enski boltinn

Moyes: Fín þrjú stig en við getum leikið betur

Stefán Árni Pálsson skrifar
David Moyes.
David Moyes. Mynd. / Getty Images
David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, var að vonum ánægður með sigurinn gegn Wigan í ensku úrvalsdeildinni í dag, en heimamenn sigruðu leikinn 3-1.

„Mér fannst spilamennska okkar ágæt í fyrri hálfleiknum en það vantaði samt sem áður eitthvað hugmyndarafl í leik minna manna".

„Ég gerði ákveðnar breytingar á liðinu og þær tókust sem betur fer".

„Það eina sem ég hugsaði um í dag var að ná í þrjú stig og það skipti engu máli hvernig við myndum fara að því".

„Mér fannst við eiga sigurinn skilið, en ég veit að liðið getur spilað betur".

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×