Sergio Aguero kominn í hóp með Micky Quinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. september 2011 15:56 Micky Quinn átti magnaðan mánuð með Coventry í lok ársins 1992. Mynd/Nordic Photos/Getty
Argentínumaðurinn Sergio Agüero skoraði bæði mörk Manchester City í 2-2 jafnteflinu á móti Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag og hefur þar með skorað átta mörk í fyrstu fimm leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Agüero er aðeins annar leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar sem nær að byrja svona vel en Micky Quinn nokkur skoraði tíu mörk í fyrstu sex leikjum sínum með Coventry tímabilið 1992-93 þar af komu átta þeirra í fyrstu fimm leikjunum. Coventry City keypti Micky Quinn, þá 30 ára gamlan, frá Newcastle United á 250 þúsund pund 20. nóvember 1992. Degi síðar hafði Quinn skorað tvö mörk í fyrsta leiknum sínum á Highfield Road. Quinn skoraði í sex fyrstu leikjum sínum í búningi Coventry þar á meðal tvö mörk í 5-1 stórsigri á Liverpool. Quinn endaði tímabilið með 17 úrvalsdeildarmörk og skoraði síðan bara 8 úrvalsdeildarmörk tímabilið á eftir. Hann átti ekki mörg góð ár eftir það, lenti meðal annars upp á kant við stjórann hjá Coventry og endaði síðan ferilinn með PAOK í Grikklandi.Sergio Agüero í góðum félagsskap:Átta mörk Sergio Agüero í fyrstu fimm leikjunum með Man. City 2011-2012 15. ágúst Man. City-Swansea City 4-0 (2 mörk) 21. ágúst Bolton-Man. City 2-3 (0 mörk) 28. ágúst Tottenham-Man. City 1-5 (1 mark) 10. september Man. City-Wigan 3-0 (3 mörk) 18. september Fulham-Man. City 2-2 (2 mörk)Tíu mörk Micky Quinn í fyrstu sex leikjunum með Coventry 1992-1993 21. nóvember Coventry-Man. City 2-3 (2 mörk) 28. nóvember Sheff. United-Convetry 1-1 (1 mark) 5. desember Coventry- Ipswich 2-2 (1 mark) 12. desember Southampton-Coventry 2-2 (2 mörk) 19. desember Coventry-Liverpool 5-1 (2 mörk) 26. desember Coventry-Aston Villa 3-0 (2 mörk)*Quinn skoraði ekki í sjöunda leiknum sem var 0-5 tap fyrir Manchester United á Old Trafford.
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira