Enski boltinn

Ferguson: Þetta var eins og körfuboltaleikur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alex fagnar hér að leikslokum.
Alex fagnar hér að leikslokum. Mynd. / Getty Images
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, var ánægður með sína menn eftir sigurinn gegn Chelsea í dag, en Manchester United bar sigur úr býtum gegn Chelsea 3-1 á Old Trafford.

„Á tíma var þetta eins og körfuboltaleikur. Liðin sóttu af miklum krafti og boltinn fór á ógnarhraða um völlinn,“ sagði Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, eftir sigurinn gegn Chelsea í dag.

„Leikmenn Chelsea sköpuðu sér fullt af færum en á sama tíma spiluðum við frábæran fótbolta og nýttum okkar færi betur. Markið frá Nani var stórkostlegt en hann var uppá sitt allra besta í leiknum í dag“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×