Enski boltinn

Cole verður ekki refsað

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tæklingin umrædda.
Tæklingin umrædda. Nordic Photos / Getty Images
Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Ashley Cole verði ekki sérstaklega refsað fyrir tæklingu hans á Javier Hernandez í leik Manchester United og Chelsea í gær.

Alex Ferguson, stjóri United, sagði eftir leikinn að tæklingin hafi verið sérstaklega ljós og furðaði sig á því að Cole hafi ekki fengið rautt og vítaspyrnu dæmda á sig.

Cole fékk gult spjald fyrir tæklinguna þó svo að ekkert brot hafi verið dæmt. En þar sem Phil Dowd, dómari leiksins, tók afstöðu í leiknum er ekki hægt að breyta refsingunni eftir á.

Dowd á þó eftir að skila lokaskýrslu sinni um leikinn inn til enska knattspyrnusambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×