Íslenski boltinn

Jóhann Birnir: Held að Fram bjargi sér

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld. Mynd/Vilhelm
Jóhann Birnir Guðmundsson, leikmaður Keflavíkur, segir að sínir menn hafi verið langt frá sínu besta í kvöld er liðið tapaði fyrir Fram, 1-0, í miklum fallbaráttuslag í Laugardalnum.

„Þetta var bara ekki nógu gott í dag. Það verður bara að viðurkennast,“ sagði Jóhann Birnir við Vísi eftir leikinn. „Við fórum eiginlega aldrei í gang, nema kannski þegar við áttum skalla í stöng í uppbótartíma. Það var allt og sumt.“

„Framarar áttu bara skilið að vinna. Þeir eru með gott lið og þeim tókst að styrkja sig mikið með góðum útlendingum í glugganum. Fram var líka að spila vel á fyrri hluta tímabilsins en það var bara ekkert að ganga hjá þeim. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur og ég held að þeir eigi eftir að bjarga sér.“

Jóhann Birnir gerir sér fulla grein fyrir því að staða Keflvíkinga er ekki góð. Liðið er með 21 stig og er aðeins þremur stigum frá fallsæti. „Við erum ekkert í góðum málum. Engu að síður finnst mér að við höfum spilað ágætlega að undanförnu, fyrir utan þennan leik. Þetta bara féll ekki fyrir okkur í dag og þannig er það bara. Nú er það næsti leikur sem gildir og við munum gefa allt í hann,“ bætti hann við en Keflavík mætir þá KR í frestuðum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×