Enski boltinn

Aðstoðarþjálfari Man. Utd: Chelsea-liðið er of gamalt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Meulensteen með Sir Alex.
Meulensteen með Sir Alex.
Rene Meulensteen, einn af aðstoðarmönnum Sir Alex Ferguson hjá Man. Utd, hefur ekki nokkra trú á Chelsea í vetur og segir að liðið sé of gamalt til þess að berjast um enska meistaratitilinn.

"Við hræðumst ekkert lið. City er vissulega orðið afar sterkt en við höfum svolítið sem þeir hafa ekki. Við vitum hvernig á að vinna titla," sagðu Meulensteen borubrattur.

"City mun berjast við okkur en Arsenal hefur tekið skref aftur á bak. Liverpool er enn að byggja upp og Chelsea keypti aðeins einn alvöru leikmann. Þess utan er Chelsea-liðið of gamalt og hefur ekki lengur hraðann sem þarf til í ensku úrvalsdeildinni."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×