Strákarnir töpuðu 0-2 á móti Norðmönnum í Kópavoginum 6. september 2011 15:30 Mynd/Óskar Andri
Fimm leikja sigurgöngu 21 árs landsliðsins á heimavelli er lokið eftir að íslensku strákarnir töpuðu 0-2 á móti Noregi á Kópavogsvelli í kvöld en leikurinn var í undankeppni EM 2012. Íslenska liðið hafði unnið fyrsta leik sinn í riðlinum á fimmtudaginn en tókst ekki að ná þeirri draumabyrjun sem liðið óskaði sér. Íslenska liðið byrjaði leikinn vel og fyrsti hálftíminn var frábær þar sem Ísland fékk fjölmörg fín marktækifæri. Það var lítið sem ekkert að gerast hjá Noregi þar til að íslenska vörnin gerir mistök. Norðmenn nýttu sér það og komust í 1-0 á 31. mínútu. Markið skoraði Joshua King með skalla en hann er í eigu Manchester United en í láni hjá þýska liðinu Gladbach. Norðmenn nýttu sér það vel að vera marki yfir, tóku enga áhættu og lögðu ofurkapp á varnarleikinn. Norðmenn fengu frábært tækifæri til að bæta við marki á 53. mínútu en varamarkvörðurinn Ásgeir Þór Magnússon kom þá ískaldur inn í markið og varði vítaspyrnu Joshua King. Aðalmarkvörður íslenska liðsins, Arnar Darri Pétursson, fékk á sig vítið og meiddist illa í leiðinni þannig að Hattarmaðurinn varð að stökkva í markið með þessum frábæra árangri. Þetta var fyrsti leikur Ásgeirs með 21 árs landsliðinu. Fyrirliði Norðmanna, Thomas Rogne, sem leikur með Celtic, innsiglaði síðan sigur Norðmanna eftir að íslenska vörnina sofnaði á verðinum í aukaspyrnu. Þetta var að mörgu leyti óþarfa tap en íslenska liðið náði ekki að nýta sér góða byrjun og Norðmenn höfðu síðan leikinn í hendi sér eftir að þeir komust yfir. Íslenska liðið saknaði tilfinnanlega Björn Bergmanns Sigurðarsonar sem skoraði bæði mörkin á móti Belgum. Hann var ekki með í þessum leik þar sem að hann var kallaður upp í A-landsliðið. Hér fyrir neðan má sjá textalýsingu frá leiknum þar sem koma fram allar helstu upplýsingar um framvindu leiksins sem og leikmannahópa liðanna.
Fótbolti Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Fleiri fréttir Breiðablik - Stjarnan | Grannaslagur í Kópavogi Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Sjá meira