Enski boltinn

Villas-Boas: Ekki hræddur við það að setja Torres og Lampard á bekkinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fernando Torres og Frank Lampard.
Fernando Torres og Frank Lampard. Mynd/Nordic Photos/Getty
André Villas-Boas, stjóri Chelsea, hefur varað Fernando Torres við því að hann gæti misst sæti sitt í liðinu haldi markaleysið hans áfram. Torres er þegar búinn að missa sæti sitt í byrjunarliði spænska landsliðsins og hefur verið á mikilli niðurleið síðan að hann yfirgaf Liverpool fyrir níu mánuðum síðan. Frank Lampard er önnur stórstjarna Chelsea sem missti sæti sitt í landsliðinu á dögunum en Villas-Boas hefur samt engar áhyggjur af þessum hnignandi stórstjörnum sínum.   

„Þú glatar ekki hæfileikunum þínum þótt þú skoraði bara 1 mark í 21 leik. Hæfileikarnir eru þarna en þetta er bara spurning um sjálfstraust sem kemur með æfingum og því að fara skora aftur mörk. Eitt af aðalmarkmiðum okkar er að fá okkar bestu leikmenn til að vera frjálsir til að sýna hvað þeir geta," sagði André Villas-Boas sem segir ekkert til í því að Torres sé búinn að tapa hraða eða öðrum hæfileikum sínum frá því að hann raðaði inn mörkum fyrir Liverpool.

Menn horfa nú til þess hvað Villas-Boas gerir við Torres þegar Chelsea mætir Manchester United eftir rúma viku en Didier Drogba ætlar að snúa til baka fyrir þann leik. Tveir aðrir sóknarmenn eru líka að banka á dyrnar, Daniel Sturridge er að koma til baka eftir leikbann og þá átti Romelu Lukaku flotta innkomu í síðasta leik.

Frank Lampard hefur ekki sýnt sitt allra besta að undanförnu og athygli vakti þegar Fabio Capello, þjálfari enska landsliðsins, setti hann á bekkinn fyrir Búlgaríuleikinn fyrir viku.

„Lampard er í frábæru formi. Honum líður vel og hann berst fyrir sætinu sínu eins og aðrir. Hann hefur verið í byrjunarliðinu í þremur fyrstu leikjunum þrátt fyrir mikla samkeppni innan liðsins og það segir mikið. Hann er einn af bestu leikmönnunum á Englandi og í ensku úrvalsdeildinni," sagði André Villas-Boas sem svaraði því þó aðspurður að það væri ekkert vandamál að setja bæði Torres og Lampard á bekkinn ef að það væri það besta fyrir Chelsea-liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×