Moeys ætlar að nota Barkley sparlega Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. ágúst 2011 21:15 Barkley í baráttunni við leikmenn QPR um helgina. Nordic Photos/Getty Images
David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, segist ætla að passa vel upp á hinn 17 ára miðjumann Ross Barkley. Englendingurinn var eini ljósi punkturinn í 1-0 tapi Everton á heimavelli gegn QPR um síðustu helgi. Moyes er ánægður með að Barkley fái stuðningsmenn Everton til þess að brosa en segist þó ætla að nota leikmanninn sparlega. „Stuðningsmenn Everton hafa ekki yfir miklu að gleðjast um þessar mundir. Ross gefur þeim von. En ég mun velja hann í réttu leikina og vonast til þess að fólk skilji viðhorf mitt," sagði hinn skoski stjóri Everton. Moyes hefur náð frábærum árangri með Everton síðan hann tók við liðinu árið 2002. Enskir fjölmiðlar hafa verið fljótir að rifja upp hvernig Wayne Rooney skaust upp á stjörnuhimininn undir stjórn Moyes á sínum tíma. Rooney spilaði sína fyrstu leiki fyrir Everton 16 ára gamall en Barkley er 17 ára. „Það er ekki aðeins aldurs hans vegna heldur einnig sú staðreynd að hann hefur ekki spilað mikinn fótbolta. Hann er nýkominn tilbaka eftir að hafa þríbrotið á sér fótinn og við verðum að hafa það í huga," sagði Moyes. Barkley er uppalinn í Liverpool og tengist því stuðningsmönnum sterkari böndum en aðkeyptir leikmenn. Líkt og Wayne Rooney. „Hann er rólegur utan vallar og segir ekki mikið. Hann lifnar hins vegar allur við inni á vellinum. Það er frábært að sjá leikmann með jafnmikið líf og áhuga og hann," sagði Skotinn.
Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Sjá meira