Tottenham fær Adebayor Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. ágúst 2011 13:00 Adebayor í leik með Real Madrid á síðustu leiktíð. Nordic Photos / Getty Images
Enska götublaðið Daily Mirror staðhæfir í dag að Tottenham hafi komist að samkomulagi við Manchester City um að fá Emmanuel Adebayor að láni frá City. Adebayor er ekki í náðinni hjá Roberto Mancini, stjóra City, en hann þiggur í dag um 170 þúsund pund í vikulaun hjá félaginu. Fullyrt er að Adebayor muni gangast undir læknisskoðun hjá Tottenham í dag en félagið mun hafa samþykkt að greiða meirihluta af launum hans. Sjálfur hefur Adebayor harðneitað að taka á sig launalækkun til að liðka fyrir möguleikum hans að komast að hjá öðru liði. Adebayor var í láni hjá Real Madrid á síðari hluta síðasta tímabils en spænska félagið ákvað að kaupa hann ekki frá City. „Stjórnarformaðurinn er að vinna í þessu máli og ég hef ekki hugmynd um hvernig það stendur,“ sagði Harry Redknapp, stjóri Tottenham, við enska fjölmiðla um málið. „En hann er góður leikmaður og mjög hæfileikaríkur. Ef við fáum hann fær hann tækifæri til að koma hingað og slá í gegn.“ Redknapp vill styrkja liðið fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni en ein skærasta stjarna liðsins, Luka Modric, hefur verið sterklega orðaður við Chelsea í sumar. Redknapp hefur ítrekað sagt að Modric verði áfram hjá Tottenham. Þá hefur Redknapp verið sagður áhugasamur um að fá Joe Cole frá Liverpool.
Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Sjá meira