Umfjöllun: Guðjón Pétur náði í stig fyrir Valsmenn Stefán Árni Pálsson á Kópavogsvelli skrifar 28. ágúst 2011 00:01 Kristinn Jónsson og Sigurbjörn Hreiðarsson. Mynd/Valli
Blikar og Valsmenn gerðu 1-1 jafntefli á rennandi blautum Kópavogsvelli í kvöld, en Valsmenn jöfnuðu metin í blálokin þegar Guðjón Pétur Lýðsson skoraði beint úr aukaspyrnu. Andri Rafn Yeoman skoraði mark Breiðabliks rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og það stefndi allt í heimasigur. Valsmenn gefast aftur á móti aldrei upp og náðu að knýja fram jafntefli. Grasið var rennandi blaut þegar flautað var til leiks í Kópavoginum í kvöld og leikurinn bar þess merki, en liðin áttu erfitt með að fóta sig. Valsmenn voru ákveðnari og ívið líklegri til þess að skora og fengu nokkur fín færi en náðu ekki að nýta sér það. Blikar unnu sig hægt að rólega inn í leikinn og það bar árangur. Andri Rafn Yeoman vann boltann inn í vítateig Valsmanna eftir mikið klafs og þrumaði boltanum í netið, alveg óverjandi fyrir Harald Björnsson í marki Valsmanna. Staðan var 1- 0 í hálfleik en gestirnir voru alveg líklegir að koma til baka og í það minnsta jafna metin. Valsmenn komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleiknum og ætluðu sér greinilega að jafna leikinn. Blikar voru fastir fyrir og gáfu Valsmönnum lítið pláss. Gestirnir fengu nokkur ágæt færi en það ætlaði að reynast erfitt að skora. Þegar komið var fram á 90. mínútu leiksins fengu Valsmenn aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig Breiðabliks. Guðjón Pétur Lýðsson gerði sér lítið fyrir og skoraði beint úr spyrnunni alveg óverjandi fyrir Sigmar Inga Sigurðarson í marki heimamanna. Jafntefli því niðurstaðan sem verður að teljast nokkuð sanngjörn úrslit. Blikar voru aftur á móti hársbreidd frá því að fara heim með stigin þrjú.Breiðablik - Valur 1-1Dómari: Erlendur Eiríksson (8)Skot (á mark): 6 – 11 (3-5)Varin skot: Sigmar 3 – 2 HaraldurHorn: 1 – 2Aukaspyrnur fengnar: 8–13Rangstöður: 0-1
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika Íslenski boltinn Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Handbolti Enginn Íslendingur á heimsleikunum í fyrsta sinn í sautján ár Sport Bestu mörkin: Völdu draumalið Íslands á EM og engin þeirra eru eins Fótbolti Sjáðu mörkin úr Bestu: Valur rústaði KR og tvö rauð fóru á loft í Kópavogi Íslenski boltinn Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Körfubolti Risa skandall þar sem sænskur maður hagræðir fótboltaleikjum Sport Dramatísk endurkoma þýðir að Inter Miami þarf að mæta PSG Sport Fleiri fréttir Óskar láti gagnrýnisraddir úr Vesturbæ sem vind um eyru þjóta Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“ Sjáðu mörkin úr Bestu: Valur rústaði KR og tvö rauð fóru á loft í Kópavogi Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika Uppgjörið: Valur-KR 6-1 | Valsmenn rassskelltu KR-inga Uppgjörið: ÍBV-Afturelding 1-2 | Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sögulegan sigur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 1-1 | Dramatík í Kópavogi Aldrei séð föður sinn jafn glaðan og sáttan í einu og sama verkefninu Sjáðu mörkin úr Bestu þar sem Gylfi Þór fór mikinn og glæsimark var skorað „Gæðin í liðinu munu alltaf skora mörk“ Uppgjör: ÍA-Stjarnan 0-3 | Stjarnan upp í þriðja sætið eftir sigur á botnliðinu Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi maðurinn á bak við sigur Víkinga Taplausir ÍR-ingar juku forskot sitt á toppnum Tíu Þórsarar lönduðu fyrsta sigri sínum í þessum mánuði Sigurður Bjartur: Ég fór beint í klippuna Félagarnir í sjokki: Sjáðu stórkostlegt mark Sigurðar Bjarts Fékk símtal á fimmtudaginn og komst að samkomulagi sólarhring síðar Uppgjörið: FH - Vestri 2-0 | Upp um fjögur eftir magnað mark og skalla Uppgjörið: Þór/KA - Víkingur 4-1 | Öruggur sigur Þórs/KA gegn lánlausi liði Víkings Uppgjörið: FH - Valur 1-2 | Valur nældi sér í ofboðslega langþráðan sigur Lárus sagði leikmenn ÍA hætta og stjórnendur sofa á verðinum Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 0-3 | Blikar á toppnum næsta mánuðinn Reif Sæunni niður á hárinu Lárus Orri stýrir ÍA út tímabilið Gæti gerst hratt hjá ÍA en varaplanið er klárt Íhugaði að koma ekki heim: „Þarf að berjast fyrir mínu sæti í liðinu“ Uppgjörið: FHL - Tindastóll | Stólarnir koma sér úr fallsæti Uppgjörið: Fram - Þróttur | Þróttarar stöðva sigurgöngu Fram Ekkert lið vill fara með óbragð í munni frá tíundu umferð Átök Arnars og Óskars hófust í yngri flokkum: Dramatík í úrslitum á Akureyri Sjá meira
Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport
Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport