Park Chu-Young á leið til Arsenal - skrópaði í læknisskoðun hjá Lille Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. ágúst 2011 13:43 Park Chu-Young í leik með landsliði sínu. Nordic Photos / Getty Images
Samkvæmt enskum fjölmiðlum mun Suður-Kóreumaðurinn Park Chu-Young ganga til liðs við Arsenal um helgina. Hann er landsliðsfyrirliði Suður-Kóreu og fyrrum liðsfélagi Eiðs Smára Guðjohnsen hjá AS Monaco, þar sem Park er enn í dag. Fullyrt er að þessi 26 ára gamli sóknarmaður muni gangast undir læknisskoðun hjá Arsenal í dag eða snemma á morgun. Að því loknu muni hann skrifa undir samning við félagið. AS Monaco féll úr frönsku úrvalsdeildinni í lok síðustu leiktíðar. Park hafði einnig verið orðaður við Fulham og var næstum genginn til liðs við Lille í Frakklandi áður en Arsene Wenger, stjóri Arsenal, skarst í leikinn. Park var þá hálfnaður með læknisskoðun sína hjá Lille en mætti svo skyndilega ekki á tilsettum tíma til félagsins til að klára hana í morgun. „Við höfum ekki fengið símtal - ekki neitt,“ sagði Michel Seydoux, forseti Lille, við franska fjölmiðla í dag. „Okkur skilst að hann geti verið hjá Arsenal. Monaco veit ekkert um málið og eru jafn hissa á þessu og við. Það var búið að ganga frá þessu öllu saman.“
Mest lesið Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG Fótbolti Wrexham áfram eftir vítaspyrnukeppni Fótbolti Bað kærastann sinn afsökunar Sport Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti „Þetta var eflaust frábær leikur fyrir áhorfendur“ Fótbolti „Þetta var bara út um allt“ Fótbolti Dagskráin í dag: Besta, enski og Ofurbikarinn Sport Nýtt hlaðvarp Sýnar um draumaliðsleik enska boltans Fótbolti FCK rassskellti frændur sína frá Malmö Fótbolti Fleiri fréttir Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Sjá meira