Enski boltinn

Ferguson: Berbatov fer ekki frá okkur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United,  hefur gefið það út við enska fjölmiðla að Dimitar Berbatov, leikmaður Man. Utd., sé ekki á förum frá félaginu.

Berbatov hefur ekki fengið margar mínútur inn á vellinum að undanförnu þrátt fyrir að leikmaðurinn hafi skorað flest mörk allra í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Sterkur orðrómur hefur verið að undanförnu þess efnis að leikmaðurinn sé að leiðinni frá Englandsmeisturunum, en nú hefur knattspyrnustjórinn skoski útilokað það.

„Leikmaðurinn hefur ekkert kvartað,“ sagði Ferguson við fjölmiðla ytra.

„Nokkur lið hafa sýnt mikinn áhuga á Berbatov, en hann fer ekki frá okkur. Hugafarið hjá honum er til fyrirmyndar og margir ungir strákar geta tekið Berbatov til fyrirmyndar“.

„Ég hef tilkynnt honum það að hann eigi eftir að spila stórt hlutverk á þessari leiktíð, en hann verður að vera þolinmóður. Þegar álagið eykst þá mun hann fá að spila meira“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×