Pardew og Wenger sjá hlutina í afar ólíku ljósi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. ágúst 2011 09:00 Wenger og Pardew lenti saman um árið þegar Pardew var knattspyrnustjóri West Ham. Nordic Photos/AFP
Joey Barton var miðpunktur athyglinnar í markalausu jafntefli Newcastle og Arsenal á St. James' Park í gær. Fílabeinstrendingurinn Gervinho sá rautt eftir viðskipti við Barton. „Ég tel mig hafa séð atvikið betur en dómarinn. Þetta var bara rifrildi, dómarinn hefði getað gefið tvö gul eða tvö rauð. Gervinho átti ekki skilið að vera rekinn útaf að mínu mati og Barton var klárlega ekki sleginn það fast að hann þurfti að liggja á jörðinni í tvær mínútur. Ég ætla að skoða þetta vel áður en við tökum ákvörðun um hvort við áfrýjum brottvísuninni," sagði Wenger. Þetta er annað tímabilið í röð sem leikmaður Arsenal sér rautt á opnunardeginum í sínum fyrsta leik með Arsenal. Frakkinn Laurent Koscielny var rekinn af velli í jafntefli gegn Liverpool á Anfield fyrir ári. Alan Pardew knattspyrnustjóri varði miðjumanninn sinn. „Í fyrst lagi var þetta dýfa hjá Gervinho, engin spurning. Viðbrögð Joey voru að láta hann heyra það sem ég get skilið. Síðan voru þeir að kljást og Gervinho sló hann. Það má ekki. Ég ætla ekki að láta eins og Joey sé kórdrengur, okkur hefur lent saman en í þetta skiptið hélt hann ró sinni. Hann var bara ósáttur við leikmann sem reyndi að leika á dómarann og það gerir hann ekki að skúrki. Hann er bara skoðunarglaður drengur, það er allt og sumt," sagði Pardew. Gervinho fer að öllu óbreyttu í þriggja leikja bann fyrir brottvísunina.
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Fleiri fréttir Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Sjá meira