Ferguson útilokar ekki að Berbatov fari Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. ágúst 2011 10:15 Dimitar Berbatov í leik með Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Framtíð Dimitar Berbatov hjá Manchester United er enn í óvissu en stjóri liðsins, Alex Ferguson, segir það vel mögulegt að Berbatov muni spila með Paris St. Germain í framtíðinni. PSG er sagt hafa áhuga á að fá Berbatov í sínar raðir og var Ferguson spurður af frönskum blaðamanni í gær hvort að Berbatov myndi mögulega spila með PSG í framtíðinni. „Að sjálfsögðu - ekkert mál,“ sagði Ferguson og brosti. Berbatov var markahæsti leikmaður United í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og deildi gullskónum með Carlos Tevez, leikmanni Manchester City. Engu að síður virðist Ferguson ekki hafa mikla trú á Berbatov þegar kemur að mikilvægustu leikjunum en Berbatov var ekki í hópnum þegar að United tapaði fyrir Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í vor. PSG er sagt reiðubúið að greiða 18-20 milljónir punda fyrir Berbatov og gæti United freistast til að taka tilboðinu. United hefur eytt um 50 milljónir punda í nýja leikmenn í sumar - þá Ashley Young, David de Gea og Phil Jones. Forráðamenn United hafa þó áður sagt að Berbatov sé ekki til sölu og að hann muni mögulega hafa stóru hlutverki að gegna í liðinu á næstu leiktíð. Hann er dýrasti leikmaður United frá upphafi en félagið greiddi 30,75 milljónir punda fyrir hann á sínum tíma.
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Sjá meira