Mancini vill fá fleiri leikmenn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. ágúst 2011 08:00 Roberto Mancini, stjóri City. Nordic Photos / Getty Images
Roberto Mancini segir að hann sé ekki með nógu marga leikmenn til að geta unnið ensku úrvalsdeildina á næsta keppnistímabili. Hann vill fá 2-3 leikmenn til viðbótar. Mancini telur að núverandi meistari, Manchester United, sé „fimm skrefum“ á undan City sem hefur þó eytt háum upphæðum í leikmenn í sumar. Félagið fékk Sergio Agüero frá Atletico Madrid fyrir 38 milljónir punda og varnarmennina Gael Clichy og Stefan Savic þar að auki. „United er á topnum eftir að hafa unnið úrvalsdeildina síðast. Þeir hafa bætt sterkum leikmönnum við sinn hóp og standa framar okkur í dag. Það munar þó ekki miklu,“ sagði Mancini við enska fjölmiðla. United og City mætast í árlegum leik um Samfélagsskjöldinn í dag. „Við viljum bæta árangur okkar frá síðasta tímabili og við munum reyna að vinna ensku úrvalsdeildina. En til þess þurfum við að fá 2-3 leikmenn til viðbótar. United er með 29 leikmenn í sínu aðalliði en við með 20 leikmenn.“ Mancini vill fá Samir Nasri frá Arsenal og er ekki talið ólíklegt að Arsenal sé nú reiðubúið að selja leikmanninn. Fram kemur í enska blaðinu Guardian að City sé með 24 leikmenn í sínum aðalliðshópi og eru þá þeir Emmanuel Adebayor, Wayne Bridge, Craig Bellamy, Roque Santa Cruz og Nedum Onuoha ekki taldir með. Þeir fá ekki að æfa með aðalliðinu þar sem þeir eru ekki í framtíðaráætlunum Mancini.
Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Fleiri fréttir Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Man. City - West Ham | Bláklæddir geta tyllt sér á toppinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Sjá meira