Forseti Tékklands gagnrýnir fyrstu Gay Pride gönguna þar í landi 9. ágúst 2011 16:00 Václac Klaus, forseti Tékklands, segir reginmun á því að þola eitthvað annars vegar, og gefa því opinberan stuðning hinsvegar. Mynd/Getty „
Ég finn ekki til stolts vegna þessa viðburðar“ segir Václac Klaus, forseti Tékklands, í yfirlýsingu á vefsíðu sinni um fyrstu Gay Pride gönguna sem haldin verður í höfuðborginni Prag á morgun. „Það er eitt að þola eitthvað, en það er allt annað að gefa því opinberan stuðning í nafni mikilvægrar stofnunar.“ Þrettán erlend sendiráð í Tékklandi gáfu síðastliðinn föstudag út sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau lýstu yfir stuðningi við gönguna. Klaus hefur gagnrýnt yfirlýsinguna og segir hana vera tilraun sendiráðanna til að hafa áhrif á pólitíska umræðu í landinu. Var forsetinn þá að vísa til þess að borgarstjórinn í Prag var gagnrýndur harðlega í síðustu viku fyrir að hafa opinberlega stutt viðburðinn, en varaskrifstofustjóri forseta lagði það til við borgarstjórann að hann segði af sér vegna málsins. Forsetinn hefur neitað að taka afstöðu gegn ummælum starfsmanns síns og ítrekar í skrifum sínum muninn á því að virða samkynhneigð og að auglýsa „hómósexúalisma“. Gleðigangan sem áætluð er í Prag sé dæmi um slíkan „hómósexúalisma“, og það segir hann að valdi sér miklum áhyggjum. Václac Klaus beitti neitunarvaldi sínu á lög um staðfesta samvist árið 2006.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Sjá meira