Aron Einar: Byrjaður að vaxa mosi á mér á hótelinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. júlí 2011 09:00 Það verður fróðlegt að fylgjast með Aroni Einari í bláum búningi Cardiff í vetur. Mynd/cardiffcityfc.co.uk
Aron Einar Gunnarsson leikmaður Cardiff tekur ekki þátt í æfingaleik Cardiff gegn Parma á Þúsaldarvellinum í Cardiff á morgun. Malky Mackay knattspyrnustjóri Cardiff vill hvíla Aron sem fékk lítið sumarfrí vegna anna með landsliðum Íslands. „Undirúningstímabil er alltaf undirbúningstímabil. Við höfum verið að spila við slakari lið. Þetta var líka svona hjá Coventry. Úrslitin skipta ekki öllu máli. Þetta snýst um að hlaupa og koma sér í leikform. Við spiluðum reyndar leik gegn Celtic líka, stóðum okkur vel en töpuðum reyndar 1-0,“ segir Aron. Aron Einar segist hafa verið í fínu formi þegar hann kom til félagsins enda stutt síðan hann spilaði með landsliðum Íslands. Hann verður hvíldur á morgun þegar Hernan Crespo og félagar í Parma sækja Cardiff heim. „Hann (Mackay) vill frekar hafa mig ferskan á móti West Ham (í fyrsta leik tímabilsins). Hann vill ekki taka neina áhættu á álagsmeiðslum í upphafi tímabils. Það hafa verið margir leikir bæði með A-landsliðinu og U21 árs liðinu. Ég skil hann mjög vel. Ég fæ allavegna að sitja uppi í stúku eða á bekknum og njóta þess að horfa á fótbolta.“ Aron Einar var nýkominn upp á hótelherbergi þegar blaðamaður heyrði í honum hljóðið í dag. Aron er orðinn hundleiður á því að búa á hóteli. „Jú, ég er reyndar að flytja út á mánudaginn. Var að hitta leigusalann og skrifa undir. Ég verð fluttur inn á mánudaginn sem betur fer. Það er byrjaður að vaxa mosi á mér hérna á hótelinu. Ég hélt að það tæki mosa 100 ár að vaxa en það er ekki svoleiðis. Maður er kominn með nóg af hótelmat og þernunum að gera allt fyrir mann. Maður getur loksins farið að elda sinn eiginn mat á mánudaginn,“ segir Aron eldhress að vanda.
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira