Umfjöllun: Stjarnan vann Breiðablik með marki í uppbótartíma Stefán Árni Pálsson á Stjörnuvelli skrifar 16. júlí 2011 15:00 Mynd. / Arnþór
Stjarnan vann magnaðan sigur, 3-2, á Breiðablik en sigurmarkið kom þegar nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum. Garðar Jóhannsson skoraði tvö mörk í leiknum og það síðari var sigurmarkið. Stjörnumenn sóttu án afláts í byrjun leiks og hreinlega óðu í færum. Garðar Jóhannsson, leikmaður Stjörnunnar, náði í byrjun leiks góðu skoti að marki Blika sem Ingvar Þór Kale varði frábærlega. Jóhann Laxdal fékk stuttu síðar boltann fyrir utan teig og þrumaði honum á markið og aftur varði Ingvar frábærlega í marki Breiðabliks. Breiðablik hefði auðveldlega geta lent 2-0 undir eftir tíu mínútna leik en markið lá heldur betur í loftinu. Þremur mínútum síðar náðu Stjörnumenn að komast yfir þegar Daníel Laxdal skoraði glæsilegt mark. Halldór Orri Björnsson lyfti boltanum inn fyrir vörn Blika, þar var Daníel mættur og stýrði boltanum í netið. Heldur betur sanngjörn staða og Blikar ekki mættir til leiks. Breiðablik náði hægt og rólega að stimpla sig inn í leikinn næstu mínútur og náðu að jafna metin rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Dylan Macallister skoraði flott mark eftir frábæra sendingu frá Arnari Má Björgvinssyni, en hann tók boltann á lofti og hamraði honum í netið af stuttu færi. Staðan því 1-1 í hálfleik eftir skemmtilegan fyrri hálfleik. Síðari hálfleikurinn byrjaði aðeins rólegra en sá fyrri og liðin voru nokkuð lengi í gang, en eftir tuttugu mínútna leik í síðari hálfleik náðu Blikar að komast yfir. Daníel Laxdal var fyrir því áláni að skora sjálfsmark. Arnar Már Björgvinsson, leikmaður Blika, átti fínan sprett upp hægri vænginn, gaf fyrir þar sem Daníel fékk boltann í sig og þaðan í netið. Virkilega óheppilegt fyrir Garðbæinginn sem hafði átt góðan leik fram að markinu. Leikurinn dofnaði heldur næstu mínútur en heimamenn gáfust aldrei upp og héldu áfram að berjast. Tíu mínútum fyrir leikslok náði Garðar Jóhannsson að jafna leikinn með marki úr skalla eftir magnaða fyrirgjöf frá Bjarka Páli Eysteinssyni. Lokamínúturnar voru æsispennandi og allar blikur á því að sigurmarkið kæmi sem og það gerði á 93. mínútu leiksins þegar Blikar gerðu sig seka um skelfileg varnarmistök. Finnur Orri Margeirsson, miðvörður Blika, reyndi að hreinsa boltann út úr teignum með þeim afleiðingum að hann beint á kollinn á Garðari Jóhannssyni sem þurfti aðeins að stýra boltanum í netið. Stjarnan náði að tryggja sér frábæran sigur og eru komnir með 18 stig í deildinni.Stjarnan 3 – 2 Breiðablik1-0 Daníel Laxdal (12.) 1-1 Dylan Macallister (43.) 1-2 Jóhann Laxdal, sjálfsmark (65.) 2-2 Garðar Jóhannsson (80.) 3-2 Garðar Jóhannsson (93.) Skot (á mark): 10 – 5 (7-4) Varin skot: Ingvar 4 – 4 Ingvar Horn: 4 – 5 Aukaspyrnur fengnar:12– 7 Rangstöður: 4-7 Dómari: Þorvaldur Árnason 8
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fékk skauta í augað á Ólympíuleikunum Sport Snorri beið spenntur eftir ræðu Dags og er sammála honum Handbolti Á nærbuxunum úti í snjókomunni Fótbolti „Mér gæti ekki verið meira sama um stöðuna í ensku úrvalsdeildinni“ Enski boltinn FIFA lofar að gefa Gazasvæðinu meira en sex milljarða króna Fótbolti Nýjasta aðgerð Lindsey Vonn tók sex klukkutíma Sport „Ég er bara ekki nógu góður“ Sport Vinna að nýrri mæliaðferð eftir „typpahneykslið“ Sport Fabregas segist ekki vera stoltur af framkomu sinni Fótbolti Óli P. Ólsen er látinn Handbolti Fleiri fréttir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Kominn með nóg af flakkinu Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Snýr aftur heim frá Val: „Nenni ekki að hafa þetta of væmið“ Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Sverrir frá Eyjum til FH „Breiðablik búið að vera mígandi utan í mig í mörg ár“ Utan vallar: Eins og að missa ljósleiðarann og þurfa að nota aftur gamla módemið FH hafði betur gegn Stjörnunni Breiðablik kaupir Ívar af KA Blikar að landa Ívari KA vann meistarana og Stígur Diljan sá rautt KSÍ dregur úr verðhækkunum KR lenti tveimur undir en er enn án taps Keflavík og HK á sigurbraut Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Dramatík í Suðurnesjaslag Draga sig úr keppni og hvetja félög til að beita sér á ársþingi KSÍ „Þetta er allt annað dæmi“ Íslenska deildin byrjar langsíðust Freyja með þrennu er Víkingur valtaði yfir Fram Hallgrímur bætist við landsliðshópinn Kristján krækti í einn besta leikmann Bestu deildarinnar Guðmundur Magnússon skiptir úr bláu í grænt Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Sjá meira