Íslenski boltinn

Umfjöllun: Lennon tryggði Frömurum sinn fyrsta sigur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Framarar unnu langþráðan sigur í Víkinni í kvöld en Framliðinu hafði ekki tekist að vinna í fyrstu tíu leikjum sínum í deildinni. Skotinn Steven Lennon tryggði Fram 1-0 sigur í lok fyrri hálfleiks í sínum fyrsta leik í Frambúningnum.

Baráttan var allsráðandi á Víkingsvelli og lítið um fallega spilkafla. Liðin voru greinilega nokkuð stressuð enda mikið undir. Dauðafærin létu á sér standa en bæði lið áttu þokkalegar marktilraunir án þess að markverðir liðanna hefðu mikið að gera.

Eina mark leiksins kom undir lok fyrri hálfleiks og var af skrýtnari gerðinni.

Arnar Gunnlaugsson sendi boltann yfir miðverði Víkinga inn á Steven Lennon. Skotinn elti boltann en Magnús Þormar kom út á móti og ætlaði að skalla boltann í burtu. Því miður fyrir Magnús skoppaði boltinn yfir hann, Lennon náði til hans og setti í netið.

Lennon var í miklu kapphlaupi við Mark Rutgers sem pressaði hann en sem betur fer fyrir Lennon tókst honum að koma boltanum yfir línuna. Markið kom á 43. mínútu og úr fyrsta dauðafæri leiksins. Skömmu síðar fékk Viktor Jónsson gott skallafæri en setti boltann framhjá.

Síðari hálfleikur var ekki ósvipaður þeim fyrri. Fátt um fína drætti en bæði lið seldu sig dýrt. Dómari leiksins þurfti að nota flautuna mun meir en æskilegt er. Undir lokin fékk Þorvaldur Sveinn Sveinsson leikmaður Víkings sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Víkingum tókst ekki að skapa sér dauðafæri og létu reyndar aðeins einu sinni reyna á Ögmund í marki Framara sem var öruggur í öllum sínum aðgerðum í kvöld.

Að leiknum loknum munar aðeins stigi á Frömurum í botnsætinu og Víkingum í sætinu fyrir ofan.

TölfræðiSkot (á mark): 6-13 (1-4)

Varin skot: Magnús 3 – Ögmundur 1

Horn: 6-7

Aukaspyrnur fengnar: 13-24

Rangstöður: 1-2

Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson 6.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×