Björn Einarsson: Þetta var mjög erfið ákvörðun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júlí 2011 17:59 Sigurmark Steven Lennon í gær markaði endalok á þjálfaratíð Andra Marteinssonar í Víkingi. Mynd/Stefán
Andri Marteinsson var í kvöld látinn fara sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Víkingum og félagið leitar nú að eftirmanni hans. Víkingar vonast til að geta tilkynnt um nýjan þjálfara á morgun sem verður þá þriðji þjálfari liðsins á rúmum fjórum mánuðum. „Þetta var mjög erfið ákvörðun en stjórnin og Andri sjálfur voru sammála um það að félagið skipti öllu máli. Það er enginn stærri en félagið og þetta er allt gert í fullu samkomulagi eins og kom fram í tilkynningunni frá okkur," sagði Björn Einarsson, formaður Knattspyrnudeildar Víkings. „Liðið er að spila undir væntingum og árangurinn er undir væntingum. Andri kom inn í mjög erfiðar og krefjandi aðstæður þegar hann tók við af Leifi (Garðarssyni) á sínum tíma," sagði Björn sem ítrekaði hversu feykilega erfið ákvörðun það var að láta Andra fara. „Nú verður bara unnið hratt því við megum engan tíma missa í að finna næsta þjálfara. Það er sutt í næsta leik," sagði Björn en næsti leikur Víkinga er á móti Þór sem er einn af úrslitaleikjum sumarsins í fallbaráttunni. „Það er alltaf verið að stilla upp öllum leikjum sem úrslitaleikjum en menn vita nákvæmlega hvað þarf að gera. Næsti leikur er gríðarlega mikilvægur eins og allir þeir ellefu leikir sem eru eftir," sagði Björn sem segist vera í viðræðum við þjálfara en vill ekki gefa upp hverjir koma til greina sem næsti þjálfari liðsins. „Við erum að sjálfsögðu byrjaðir í viðræðum við þjálfara. Það verður unnið hratt í kvöld og við eigum fastlega von á því að tilkynna um nýjan þjálfara á morgun," sagði Björn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Sér ekkert að því að senda leikmönnum bara tölvupóst Fótbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Körfubolti Fleiri fréttir Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ Sjá meira