Fyrrverandi þingmanni boðið starf hjá Hustler 19. júní 2011 14:15 Weiner með eiginkonu sinni sem er ólétt. Hann var talinn líklegur til að bjóða sig fram til borgarstjóra í New York árið 2013. Mynd/AFP
Larry Flint, sem um árabil hefur gefið út tímaritið Hustler, hefur boðið Anthony Weiner, fyrrverandi þingmanni demókrata, starf hjá fyrirtæki sínu. Flint er reiðubúinn að tuttugufalda þau laun sem Weiner hafði sem þingmaður og þá hyggst Flint gera vel við hann hvað sjúkratryggingar varðar. Weiner sagði af sér þingmennsku í vikunni í kjölfar hneykslismáls sem hófst þegar klúrar ljósmyndir af honum, sem Weiner hafði tekið sjálfur og sent ókunnugum konum á netinu, komu í dagsljósið. Áður hafði Weiner logið því til að einhver hefði hakkað sig inn á Twitter síðu hans og sent myndirnar að sér forspurðum. Hann játaði síðan að hafa tekið myndirnar og sagt ósatt. Weiner sagði loks af sér eftir að klámmyndaleikkona að nafni Ginger Lee steig fram og sagði Weiner hafi beðið sig um að ljúga til um samskipti þeirra, en þau skiptust á hátt í hundrað skilaboðum á netinu. Hvað atvinnutilboðið frá Hustler varðar tekur Flint fram að tilboðið sé sett fram af fullri alvöru. Flint telur að reynsla Weiners úr stjórnmálum og af hinum rafrænu erótísku samskiptum við fjölda kvenna geta nýtst fyrirtækinu.
Mest lesið Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Innlent Bróðir Dags B „orðlaus“ yfir Kristrúnu Innlent Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Innlent Banaslys í Rangárþingi Innlent Inga vill skóla með aðgreiningu Innlent „Klikkuð“ norðurljós fyrir utan Selfoss Innlent Gular veðurviðvaranir framundan Veður Sviminn hvarf eftir aðgerðina og hækjan horfin Innlent Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Innlent Spítalar yfirfullir af látnum mótmælendum Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin og Ísrael verði skotmörk verði ráðist að Íran Spítalar yfirfullir af látnum mótmælendum Bandaríkin gerðu loftárásir gegn ISIS í Sýrlandi Óttast innrætingu íslamista í breskum háskólum Hverfi Kúrda í Aleppo í herkví Þeir allra ríkustu búnir með „kolefniskvótann“ Meðal möguleika að greiða Grænlendingum milljónir Nýtt myndband af banaskotinu: „Helvítis tík“ Allt bendi til þess að breytingar séu í farvatninu Annar eigandi skemmtistaðarins í Sviss í haldi Verði að eignast Grænland svo Kína og Rússland geri það ekki Tuga saknað eftir ruslskriðu á Filippseyjum Bresk stjórnvöld segja viðbrögð X „móðgandi“ Ætlar að taka við nóbelnum frá Machado Tóku fimmta olíuskipið: Svona virkar „skuggaflotinn“ Stendur fastur fyrir og fordæmir Trump Flytja áhöfn geimstöðvarinnar heim vegna veikinda Hjón skotin af alríkisútsendurum í Portland Takmarka myndaframleiðslu Grok í skugga gagnrýni Segir Bandaríkin þurfa að eignast Grænland, sáttmálar séu ekki nóg Netsambandslaust meðan mótmælt er í Íran Bandaríkin áður mun öflugri á Grænlandi Telur að Evrópa myndi fórna Grænlandi fyrir NATÓ Mikil spenna í Minneapolis eftir banaskot ICE-liða Veikindi geimfara gætu flýtt heimför áhafnar geimstöðvar Segist hafa grænt ljós frá Trump fyrir frekari refsiaðgerðum gegn Rússum Enn mótmælt í Íran og átök að aukast Gervigreind Musk sögð hafa búið til kynferðislegar myndir af ellefu ára gömlum börnum Þingmaður Svíþjóðardemókrata tekin full undir stýri með kókaín í poka Trump-liðar hóta fauta Maduros sömu örlögum eða dauða Sjá meira