Styttist í ákvörðun um framtíð Aquilani Eiríkur Stefán Ásgiersson skrifar 3. júní 2011 09:30 Alberto Aquilani fagnar marki í leik með Liverpool. Nordic Photos / AFP
Umboðsmaður Alberto Aquilani telur að framtíð skjólstæðings síns muni mögulega ráðast á næsta sólarhring. Aquilani er samningsbundinn Liverpool en hann var lánaður til Juventus fyrir síðastliðið tímabil. Forráðamenn Juve nýttu sér ekki klausu í samningnum til að kaupa Aquilani áður en lánssamningurinn rann út í síðasta mánuði. Talið er að Juventus hafi ekki áhuga á að greiða uppsett verð fyrir Aquilani sem er 26 ára gamall. Hann lék með Roma áður en hann kom til Liverpool en AC Milan mun einnig hafa áhuga á að fá hann í sínar raðir. Ólíklegt er að hann endi aftur í Liverpool en það kom samt umboðsmanni Aquilani á óvart að Juventus hafi ekki gengið frá kaupunum áður en lánssamningurinn rann út. „Juventus er búið að segja mér í allan vetur að þeir vilja halda Alberto," sagði umboðsmaðurinn Franco Zavagalia við ítalska fjölmiðla. „Næsti sólarhringur mun ráða miklu og þá fyrst og fremst af því hvaða ákvörðun Juventus tekur." Zavagalia segir að Aquilani hefði áhuga á að fara til Milan ef til þess kæmi. „Af hverju ekki? Milan er fyrirmyndaknattspyrnufélag. Ef Juventus ætlar ekki að kaupa Alberto þá þætti honum það góður kostur."
Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum Enski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Enski boltinn Fleiri fréttir Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin Sjá meira