Telur breska kvótakerfið hafa brugðist 3. júní 2011 18:46
Í Bretlandi er líkt og hér á landi hávær umræða um kvótakerfið. sjávarútvegsráðherra Breta segir kerfið hafa brugðist. Óþolandi sé að einstaklingar eða félög sem ekki komi nálægt sjávarútvegi fái kvóta sem þeir geti selt einsog hverja aðra vöru. Þeir eru kallaðir slipper skippers í Bretlandi. Það mætti þýða sem inniskósskipstjórar á íslensku. Og þeir eru ekki vel séðir. Bæði þingmenn og ráðherrar eru sammála um að það verði að binda enda á þetta fyrirkomulag. Lagt hefur verið til að strandveiðiskip fái meira í sinn hlut. Innisskósskipstjórarnir eru einstaklingar og fyrirtæki sem leggja ekki sjálf stund á fiskveiðar en fá úthlutað kvóta samkvæmt reglum frá 1999. Og inniskórnir eru í fullum rétti að selja kvótann áfram til þriðja aðila eins og hverja aðra vöru. Ekkert eftirlit hefur verið með því hverjir eiga kvóta. Frá 1999 hefur kvótanum nær eingöngu verið úthlutað til skipa sem eru yfir tíu metrar. Það er úthafsflotinn. Fiskiskip undir tíu metrum sem kölluð eru strandveiðiskip fá nánast engan kvóta. Þau verða að slást um veiðiheimildir úr pottum. Í nýrri skýrslu um breskan sjávarútveg er meðal annars lagt til að kvóta skuli aðeins úthlutað til starfandi fiskimanna og útgerða. Telja má víst að róttækar breytingar verði gerðar á úthlutun fiskveiðiheimilda á næstunni. Richard Benyon, sjávarútvegsráðherra, sagði í samtali við Sky fréttastofuna alla þætti kvótakerfisins hafa brugðist.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Sjá meira