Valdabarátta í Kreml Óli Tynes skrifar 23. maí 2011 14:33 Þú ferð þessa leið út......Putin og Medvedev.
Vladimir Putin vill verða forseti Rússlands á nýjan leik og valdabarátta milli hans og Dmitrys Medvedev núverandi forseta er þegar hafin. Breska blaðið Sunday Times hefur þetta eftir háttsettum heimildarmönnum í Moskvu. Samkvæmt rússneskum lögum má forseti ekki sitja samfellt í embætti lengur en tvö kjörtímabil. Eftir að hafa setið tvö kjörtímabil árið 2008 fól því Putin forsetaembættið í hendur Medvedevs með því fororði (óopinberlega þó) að hann tæki aftur við því eftir eitt kjörtímabil. Sjálfur tók Putin við embætti forsætisráðherra á meðan. Nú eru hinsvegar teikn á lofti um að Medvedev kunni ágætlega við sig sem forseti Rússlands og sé ekkert áfjáður í að Putin snúi aftur í kosningunum á næsta ári. Nú er líka búið að breyta lögum þannig að kjörtímabilið er sex ár en ekki fjögur. Putin gæti því setið í embætti forseta til ársins 2024. Þá væri hann orðinn 72 ára og búinn að sitja sem forseti og forsætisráðherra í samtals 24 ár. Í síðustu viku sagði Medvedev; -Maður sem heldur að hann geti setið endalaust að völdum er hættulegur þjóðfélaginu. Litið var á þetta sem dulbúna árás á Putin, sem sé farinn að efast um hollustu Medvedevs. Heimildarmenn Sunday Times segja þó að ef Putin hvessi sig muni Medvedev stíga til hliðar, hversu treglega sem það verður. Og þeir segja að ef með þurfi muni Putin hvessa sig.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Fleiri fréttir Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjá meira