Milljarðamæringur sneri á ættingjana áður en hann dó 13. maí 2011 10:53 Miklar fjárhæðir bíða nú afkomenda sérvitringsins. MYND/AP
Ættingjar bandarísks auðjöfurs fá nú loksins að njóta auðæva karlsins, 92 árum eftir að hann lést. Þegar Wellington Burt, sem auðgaðist á timbri og járnframleiðslu lést, var hann á meðal tíu ríkustu manna í Bandaríkjunum. Í erfðaskrá sinni fyrirskipaði hann hinsvegar að ættingjarnir fengju ekkert af arfinum, fyrr en síðasta barnabarn hans hefði verið látið í 21 ár. Eina undantekningin var sú að eftirlætis sonur hans fékk greitt 30 þúsund dollara einu sinni á ári á meðan hann lifði. Hin börnin fengu smáupphæðir, þær sömu og þjónar og eldabuskur hans fengu. Síðasta barnabarnið, Marion Lansill, dó síðan árið 1989 og þegar 21 ár var liðið frá dánardægri hennar hafa hafa fjárkröfur streymt í búið frá fólki sem segist vera skylt karlinum. Lögfræðingar hafa nú ákveðið að tólf erfingjar hins sérvitra milljarðamærings fái myndarlega arfgreiðslu frá ættföðurnum og er arfinum skipt eftir því hve nálægt menn eru karlinum á ættartrénu. Þeir eru á aldrinum 19 til 94 ára. Þeir sem standa honum næst fá sextán milljónir dollara, eða tæpa tvo milljarða íslenskra króna.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira